Velkomin!

Já, skemmtu þér...

15.09.2008 15:23:09 / nulur

Hmm??



Ekkert spennó að gerast stelpur?, Ekkert djamm á næstunni??


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 18:05:25 / olga

Menningarnótt

Hæ brúnu stúlkukindur! .þar sem þið eruð nú allar komnar heim frá útlandinu Tyrklandi og við erum ekki búnar að sjást í mjöööög langan tíma datt mér í hug að hafa smá partýhitting..(haha..skrítið að einhver annar en fanney er að gera e-ð :P) en já, mér datt í hug að við gætum allar hist heima hjá mér um svona 6 leytið, grillað og drukkið og talað alveg rosalega mikið og farið svo allar saman á tónleikana á miklatúni :D

Hvernig líst ykkur á? 8)




» 7 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 13:46:11 / nulur

Já, þá er það aftur ég!:P

Jæja elskurnar!
Þá er Verslunarmannahelgin á næstunni! Mamma, pabbi og Inger á leið til Spánar á miðvikudaginn!:D þannig að það er frelsi frammundan:P

Ég var að spá hvað þið eruð með í huga fyrir helgina? Ég verð ekki að vinna á Laugardeginum, en það verður samt opið fyrir öllu alla helgina fyrir því! 8)Tökum veeel á því áður en við aðskyljumst í 2 vikur!!!!:haha:
Hvað segiði svo?? :klikk:


Fannsa Pannsa






» 9 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 21:13:30 / nulur

Smá partý-hittingur!

Þar sem þið stelpur eruð svooo virkar að kíkja á þessa síðu þá ætla ég að setja inn hérna blogg handa ykkur að skoða:P

En ég var að spá í að halda smá partý hérna heima hjá mér á föstudaginn! Ég viiiil að þið mætið, ALLAR! :klikk:

Þetta verður bara svona "lítið" partý, handa þeim nánustu!:P

En já mæta bara svona 8-9, það væri geggjað, byrja bara kvöldið snemma og hafa rooosa gaman!:D

Commentið og látið vita af ykkur sætu stelpur mínar! :*

-Fanney Lára


» 10 hafa sagt sína skoðun

25.06.2008 17:39:50 / nulur

Stelpur!

Stelpur! mig langar svo að hitta ykkur!! 8|

Er farin að sakna ykkar freeeekar mikið! Hvað segiði um að koma og gera e-ð, á morgunm eða bara um helgina?:)

 

Ykkar Fanney Lára


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 22:31:18 / nulur

Hæ :S

Hæ stelpur ég var að spá, muniði ekki eftir sumó sem við fórum í páskafríinum/vetrarfríinu til mín í eina nótt ? .... en allavegna þá keypti ég matinn og ég var svona að vonast til að þið gætuð borgað mér hann til baka eins og við vorum búnar að tala um, það er bara búið að dragast smá en þetta var 4500 kr í heildinna. Olga er búin að borga mér, en þið skuluð bara vera í sambandi við mig, þetta voru 450 kr á mann ;) ......

Ekkert stress ..... Gugga :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.05.2008 11:09:16 / nulur

Hvað þarf ég að taka með og hvernig á ég að komast þangað???

Þetta er mjög lógískar og algengar spurningar sem brenna á vörum ykkar flestra.  En ég ætla hér á næstu mínútum að svara þessum spurningum og kasta út til ykkra einhverjum spurningum OK?.........................Flott er þá höldum við áfram.

Hvað þarf að taka með?

---  Morgun og hádegismat. ( Ég og Guðrún sjáum um kvöldmat og smá snarl)
---  Náttföt.  (Við munum líklegast vera í þeim allan tímann)
---  Snyrtidót.  (Verður líklegast ekki notað en samt gott að hafa það með)
---  alkahól.  (Það er allgjörlega á ykkar snærum)
---  Sæng.  (Einhverjir þurfa að koma með sæng)
---  Dýna.  (Mér skilst að einvherjir þurfi að koma með dýnu kanski bara svona 1)
---  Gönguföt.  (Gaman væri ef við tækjum flippið einvherstaðar úti í smá stund)

---  Sundföt.  (Ekki sundföt nema þið viljið taka sprettinn í Þingvallarvatni)


Eruð þið með?............Flott þá held ég áfram!


Hvernig á ég að komast?

Þessi spurning er svolítið í lausu lofti.  Ég er ekki allveg að ná þessu! hverjir verða á bíl til að komast uppeftir í dag?  Ég og Guðrún erum að fara, ásamt Andreu og Fanney.  Inga verður á bíl og bíst ég við því að hún verði svo góð og vilji bjóða einhverjum far uppeftir (kæmi mér ekki á óvart) og Olga ætlar þú að koma í dag og verður þú þá á bíl? mér skilst það á Guðrúnu.  Og Hreindís.

Þeir sem koma á bíl! ATHUGIÐ!!!!!  keyrið frá mosó á þingvelli, begjið þegar þið sjáið steininn sem er á eftir vinaskógi, grænir ruslagámar!  þið skiljið örugglega ekkert hvað ég er að tala um hérna! ef þið vitið ekki hvert þið eigið að keyra hringið bara í mig eða Guðrúnu!!!!

Einnig hefðum við ekkert á móti því ef einhver gæti reddað Ipod-spilara til að geta spilað í bústaðnum.  Einhver??? Einvher???

En vááá þar sem við komumst upp úr undankeppninni í gær búumst við við miklu stuði á laugardaginn stelpur!  Komið með partýskóna og verið tilbúnar fyrir skemmtilegasta euro-bústað EVER!!!!!!!!!!!


Einhverjar spurningar sendiði mér bara sms eða gefið mér símtal (give me a call)
Þið vitið símann hjá mér en ef þið eruð búnar að gleyma honum er hann:
Ágústa GSM: 847-6894

Elskulegar kveðjur,
Ágústa

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 18:21:01 / nulur

Sumóinn !

OK OK OK, þetta er allt komið :D ..... við verðum í mínum sumarbústað (Guðrúnar). Það verður þá farið á föstudags eftirmiðdegi, eða bara svona eftir vinnu tíma.

Við reddum kvöldmat bæði kvöldin, það verður eitthvað létt fyrra kvöldið, ekki alveg ákveðið en það kemur bara í ljós þegar það kemur að því ;) og svo verður eitthvað ótrúlega ómótstæðilegt í kvöldmatinn á laugardeginum sem er auðvitað aðalkvöldið með eurovision í sjónkanum og spenningurinn í hámarki.

Þið þurfið eiginlega að koma með rúmmföt :S og sumir þurfa að koma með sæng ....

Við erum í dálitlum vandræðum með þessa gistingu þannig væru þið til í að segja okkur hvenær þið ætlið að mæta og hvað þið verðið lengi, svona upp á plássið og matinn ;D .... taaaakk ......

En utan fyrir það þá er það bara að koma með mat utan fyrir kvöldmat og góðaskapið og bjórinn og við skulum bara vona það að það verði sól og engin rigning ...... ég ætla að vera mjög vongóð með það.
Og látiði okkur vita ef þið viljið fara í singstar eða einhverja svona leiki svo við getum reddað því.

Ég verð í sambandi við ykkur seinna um hvar sumarbústaðurinn er. Nokkrar vita nú þegar hvar hann er þannig að þetta ætti ekki að vera mikið mál ;) ......

Hlökkum ótrúlega mikið til að sjá ykkur ! ..... XD


» 11 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 16:23:57 / inga

Afmæli!!

Hjellú!

Ég ætla að halda upp á afmælið mitt laugardaginn 17 maí.
Mæting svona cirka 9. og bara bring you own booz :haha:

vona að sem flestir komist
sjáumst eldhressar :d:d

kv Inga
  


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.04.2008 16:44:57 / nulur

Blessaðar ! :)

Veriði nú sælar stelpu kindunar mínar :d það er nú að fara að koma sá tími árs að seinna afmælisflóðið er að fara að ganga í garð :haha:

Ég og Ágústa vorum að spá í að halda afmælið okkar saman um evróvisionhelgina sem er 23 til 25 maí. Það er fínt því þetta er fríhelgi hjá flestum.

Við þurfum eiginlega að vita hverjar af ykkur ætla að koma með? hvað við eigum að borða þarna og hvað við ætlum að gera okkur til gamans ;) ? og í hvaða sumarbústað við ætlum að vera í, annaðhvort mínum eða Ágústu ?

Væri flott ef við fengjum að vita þetta sem fyrst. Endilega kommenta !

Kv Gugga og Ágústa

» 11 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 13:12:41 / olga

Afmæli á laugardaginn

Halló
Ég ætla að halda afmælið mitt á laugardaginn. Það er mæting svona ca. 7 og það verður matur og svaka skemmtilegt!! :D
Með kveðju, ykkar Olga Rún ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 17:15:13 / olga

Seinasta afmælið í bili ;)

Hæjj, stelpur mínar! eins og þið vitið flestar átti ég afmæli á sunnudaginn seinasta og því ætlaði ég að halda upp á afmælið mitt þessa helgi en ég var að pæla hvort hentar ykkur betur, laugardagur eða föstudagur? :)
Endilega látið mig vita í kommentum eins fljótt og þið getið;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 16:37:54 / nulur

OKEY, taka 2, sumarbústaður mán - þri ...

Jæja, úrþvíað að ég varð veik á föstudaginn í seinustu viku og sumarbústaðarferðinni var aflýst ... sorry ...... þá ætlum við að reyna að endurtaka þetta aftur ..... á mánudaginn og þriðjudaginn í næstu viku :)
Endilega að láta mig vita þeir sem komast og vilja koma .... þetta verður stuð ;) ....

Þið getið lesið seinasta blogg til að sjá upplýsingar um þetta ..... nenni ekki að skirfa þetta aftur ....
Við erum að spá í að hafa eitthvað einfalt í matinn því maður er búin að vera að borða hátíðarmat núna yfir alla páskana. Svo er það bara bjórinn/vínið/kokteillinn eða það sem þið viljið hafa við hendina, og sleppa sér :haha: ...... kannski verður singstar ef fólk nennir :lol:

Endilega láta mig vita hverjir koma svo ég geti planað þetta ! .... takk fyir mig !

Ps. Taka frá evrovision helgina það verður kannski brjáluð 2-föld afmælis-evróvision sumarbústaðar helgi ..... það er í umræðu ;) ......

» 9 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 17:00:24 / nulur

Sumarbústaður dagana 15-16 mars

Góðan og blessaðan daginn stelpur. Ætlaði bara að segja ykkur að það er sumarbústaður hjá mér næstu helgi. Það verður farið fös 15 og komið heim lau 16 .... þannig þetta er frekar stutt ferð og þurfum við því að nýta tíman sem best á föstudagskvöldinu .......

Ég er ekki viss með brottför en ég held að 4-5 leitið sé upplagt :) Afþví þetta er nú bara ein nótt þá þurfiði nú ekki mikinn mat ..... en ég var að spá hvort þið viljið vera allar með sitthvoran mat eða púkka saman í eina grand máltítð ?

Þetta er ekki rosalega stór sumarbústaður en það er allt í honum. Það er svefnpláss fyrir 7 manns og dýnur. Það eina sem er að er að það eru ekki sængur handa öllum :s ég held að það séu svona 3-4 sængur þarna ? .... ekki viss. Þannig einhver þarf að koma með sæng eða svefnpoka með sér .....

Það er ekki komin pottur þarna ennþá en það er sturta, ef það bætir :lol: .......

Það má auðvitað koma með eitthvað til að drekka, alveg sama hvað þið ætlið að drekka mikið ;) .......

Endilega láta mig vita hverjir ætla að koma ! sem fyrst ! ..........

Kv Guðrún Kirstín 


http://members.aol.com/fanimal/hippstuf/invite.jpg


Hlakka til að heyra í ykkur ;) ..... og já sumarbústaðurinn er á þingvöllum þannig það er ekki langt að fara ....


» 10 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 22:35:38 / tinna

Enn eitt afmælið..

Sælar sætu skonsur..!

Í tilefni þess að ég á nú afmæli á morgun langar mig að bjóða ykkur heim í mat, glens og grín. Þetta verður ekki beint partý eins og ég hafði hugsað það, en þið eigið það inni hjá mér ;) Ef einhverjir vilja koma með áfengi til að sötra, þá er það guðvelkomið :)
Mæting er svona um hálf 8..ekkert stress :) og mun gleðskapurinn standa fram á rauða nótt..eða eins lengi og við endumst :)
Vona að þið fyrirgefið mér stuttan fyrirvara, maður er svo gasalega upptekinn eitthvað :s


En já..þannig að þetta er svona:

  • Hvað er að gerast: Afmæli Tinnu Hrannar
  • Hvar:Fellahvarfi 10 e.h. 203 Kópavogur
  • Hvenær: um hálf 8, föstudaginn 7. mars 
  • Hvað á að koma með: góða skapið, áfengi fyrir þá sem vilja

Væri afskaplega ánægjulegt ef þið gætuð látið vita hvort þið komið, annað hvort með smsi eða bara kommentað hérna fyrir neðan ;) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 12